
Um Síðuna
Hér er boðið upp á yfirlit og fjölbreytt úrval verkefna fyrir bókina The Hobbit sem hægt er að nota í bókmenntahluta enskukennslu.
Námsefnið hentar vel fyrir elstu nemendur á miðstigi og nemendur á unglingastigi.
Í þessari útgáfu hafa verið gerðir úrdrættir úr bókinni.
Talgervill er í boði þar sem hver kafli sögunnar í þessari styttu útgáfu fyrir sig er lesinn upp á ensku. Einnig er í boði í rafræn flettibók með sama texta. Úr hverjum kafla eru spurningar sem hægt er að prenta út eða nota rafrænt.
Svo eru hér myndbrot, sótt á YouTube, bæði úr teiknimyndinni The Hobbit frá árinu 1977 og kvikmyndunum The Hobbit: An Unexpected Journey frá 2012, The Hobbit: The Desolation of Smaug frá 2013 og The Hobbit: The Battle of the Five Armies frá 2014. Brotin gefa nemendum tækifæri að sjá atburðarásina sjónrænt.
Loks er hér að finna fjölbreyttan verkefnabanka sem kennarar geta nýtt til að auka fjölbreytni í verkefnavinnu úr sögunni.